Toggle SlidingBar Area
Tónlistarskóli FÍH Logo Tónlistarskóli FÍH Retina Logo Tónlistarskóli FÍH Sticky Logo Tónlistarskóli FÍH Sticky Logo Retina
  • Heim
  • Myndir
  • Um skólann
    • Um skólann
    • Stjórn
    • Kennarar
    • Nemendafélag FÍH
    • Jafnréttisáætlun FÍH
  • Námið
    • Námsstig
    • Fræðigreinar
    • Námskeið
  • Opnunartímar
  • Umsóknir
  • Viska
Previous Next
Eiríkur Örn Pálsson

Eiríkur stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík til 1982. Hann lauk B.M. próf frá Berklee College of Music 1985. Eftir það var hann eitt ár í einkanámi, en hélt síðan til framhaldsnáms við California Institude of the Arts í Los Angeles. Hann lauk M.F.A. prófi þaðan 1988. Þá hefur Eiríkur stundað tónsmíðanám hjá Atla H. Sveinssyni, John Bavicci og Stephan Mosho.

Eiríkur Örn er fastráðinn trompetleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá 1996. Hann hefur verið meðlimur Caput hópsins frá upphafi og hefur leikið á fjölmörgum diskum hópsins auk þess að hafa farið í tónleikaferðir með hópnum til fjölmargra landa.

Hann leikur reglulega með Kammersveit Reykjavíkur og hefur hljóðritað fjölmarga diska með sveitinni, m.a.  trompetkonserta eftir J. F. Fasch og Leopold Mozart og farið í tónleikaferðir m.a. til Kína, Japans og Rússlands.

Hann frumflutti trompetkonsert eftir Jónas Tómasson með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Á hljómdiskinum „Trompetaria“ leikur hann ásamt öðrum trompetleikara og organista tónlist fyrir trompet og orgel.

Trompetleik Eiríks Arnar hefur mátt heyra á leiksýningum Þjóðleikhússins og Borgarleikhússins og í Íslensku óperunni.  Hann lék einnig um tíma með Stórsveit Reykjavíkur. Auk þess sem hann hefur leikið í hljóðverum fyrir kvikmyndir, sjónvarp og hjómdiskaútgáfur ýmiskonar.

Hann kennir við Tónlistarskólann í Reykjavík, Tónlistarskóla FÍH og Listaháskóla Íslands.

Netfang: heirikur@talnet.is
Símanúmer: 562 2434 / 698 2034

Til baka í kennarayfirlit
tonoadmin2016 2016-06-02T14:44:38+00:00
Copyright 2017 Tónlistarskóli FÍH | Rauðagerði 27 | 108 Reykjavík | S. 588 8956
Facebook